Sannreynd virkni
Í rannsókn með 207 þátttakendum sem fór fram um fjögurra vikna skeið sögðu 91% þátttakenda að gelið virkaði vel til að slaka á vöðvum. Meira en tveir þriðju þátttakenda sögðu að gelið endurnærði þá þegar það væri borið á að morgni dags, þrír af hverjum fjórum sögðu það búa yfir verkjastillandi áhrifum, og fjórir af hverjum fimm sögðu það vera vöðvaslakandi bæði eftir erfiðan vinnudag og erfiða æfingu í ræktinni.
OFURGELIÐ!
5Kind-gelið er búið til úr meira en ellefu náttúrulegum olíum sem eru sérvaldar fyrir sefandi og rakagefandi eiginleika. Það er gott að bera gelið á líkamann fyrir líkamsrækt og/eða eftir á, en notendur segja að það virki mjög vel gegn verkjum, stífleika, tognun og ýmiss konar eymslum. Þeir sem hafa tjáð um um 5Kind-gelið á Amazon segja það vera vöðvaslakandi, örvandi fyrir blóðrásina, frábært fyrir liðamótin og gott gegn síþreytu. Þá virki það sérstaklega vel til að vinna á verkjum og vöðvabólgu, ekki síst í öxlum, sem eru tilkomin af einhæfri skrifstofuvinnu og löngum setum við tölvu. Meira en 10 þúsund notendur gelsins hafa gefið því einkunnina 4,4 af 5 á Amazon!
NOTKUN
Mælt er með að bera 5Kind á sig á daginn til að losa um vöðvaspennu og á kvöldin fyrir góðan nætursvefn, auk þess sem það er frábært til að mýkja og slaka á þurri húð. Það er sérstaklega gott að nota gelið samhliða nuddi og djúpvefjanuddi. Öll virku efnin í gelinu koma úr hamp-plöntunni og það er án allra gerviefna. 5Kind er frábært til að ná sér og safna kröftunum aftur eftir erfiða æfingu í ræktinni eða langan vinnudag, og það virkar best ef það er borið á reglulega. Prófaðu 5Kind á fætur, hné, bak, háls, mjaðmir, handleggi og úlnliði, og leyfðu slökunaröldunni að skolast yfir þig.
Þú færð 5Kind Active gelið í verslunum Bónuss og Krónunnar.
Náttúruleg lausn við verkjum
Koma stöðug vöðvabólga og liðverkir í veg fyrir að þú njótir lífsins og náir almennilegum nætursvefni? Prófaðu Hemp Active gelið frá 5Kind.
Í prófunum hafa þeir sem glíma við liðagigt sagt að Hemp Active virki vel til að lina þjáningar sínar og slá á einkenni.
Hampolían hefur þann einstaka eiginleika að minnka bólgur og þrútnun í líkamanum og inniheldur virk andoxunarefni sem vinna gegn stoðeindum sem magna upp verki.
Rósmarínolía er rík af andoxunarefnum og bólgueyðandi efnasamböndum sem minnka sársauka í liðamótum og draga úr verkjum við tognun.
Mentól er litlaust alkahól unnið úr piparmyntuolíu sem hefur svalandi áhrif á vöðvana með því að örva hitanema í húðfrumunum sem hjálpar líkamanum að bregðast við hitabreytingum.
Kamfóra er unnin úr berki kamfórutrésins og notuð í ýmis lyf og mölvarnarefni. Hún örvar blóðrásina, hraðar á efnahvörfum sem minnka bólgur, og hefur sótthreinsandi eiginleika.
Hemp Active gelið er best að nota á hné, bak, fætur, hendur, háls, úlnliði, axlir, ökkla, olnboga, hendur, mjaðmir og hásinar. Þannig má draga úr verkjum í liðamótum, minnka vöðvabólgur, krampa, tognun og álags- og íþróttameiðsl.